Hvenær er almenningur settur í 1. sæti ?

Það er aumt að sjá að ríkisstjórnin sópar þessu bara út af borðinu, við smá hiksta frá lífeyrissjóðum og ASÍ.
Erum við almenningur ekkert annað en smá horrennsli í huga ríkisstjórnarinnar?
Smá horrennsli getur auðveldlega breytst í kvef og hósta...og þaðan í flensu... ef ekki er brugðist við. Það þarf að hlúa að okkur almenningi.
Við tókum lán til að kaupa okkur fasteign, og það er ekkert óeðlilegt við það.
En þegar lánin stökkbreytast með fáránlegri verðbólgu... þá er ekkert eðlilegt við það.
Við viljum leiðréttingu á þessari stökkbreytingu!
Ef það er ekki hægt að gera flata niðurfellingu... þá þarf bara að finna aðra leið.
Júlíus Sólnes talar um afturvirka niðurfærslu á vísitölu, og það eru örugglega til fleiri leiðir.
Það þarf bara að finna réttu leiðina.

Fréttamaskína ríkisstjórnarinnar er komin í gang.
Það er talað um, eins og ekkert sé eðlilegra, að yfirtaka húsnæðis sé bara rökrétt framhald af hruninu.
Að nú þurfi að stofna fasteignafélög til að koma á frambærilegum leigumarkaði.
Sér enginn neitt athugavert við þetta ?
Mér finnst ekkert eðlilegt að það sé talað um það, eins og eðlilegt mál, að yfirtaka húsnæðis sé í lagi.
Það hefur um langa hríð verið mikilvægt í huga Íslendinga að eignast þak yfir höfuðið. Og af því það hentar ríkisstjórninni og lánveitendum að koma á fót leigumarkaði... þá á það bara að vera í lagi !
Mér finnst þetta óþolandi !
Ef ég tala fyrir sjálfa mig... þá vil ég eiga mitt húsnæði, og mér finnst að fólki eigi að vera gert kleift að eignast sitt húsnæði.
Það að verðbólgan sé búin að éta upp þann höfuðstól sem kominn var, er hreint út sagt óþolandi og ég vil leiðréttingu á því strax !

Hvenær er almenningur settur í 1. sæti?
Ég held að svarið við því sé lýklega þegar það kemur að skerðingu á réttindum.
Við lendum í 1. sæti þar!
Er það eitthvað sem við viljum sætta okkur við ?


mbl.is Niðurfærsla talin bótaskyld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eina rétta !

Það er nauðsynlegt að jafnt gangi yfir alla!
Það er mikil reiði í þjóðfélaginu!
Reiðin er mikil hjá þeim sem skulda mikið, en ekki síður hjá þeim sem eru rétt svo að ná að halda í halann á skuldunum sínum, og eru í raun í skuldafangelsi... jafnvel þótt þeir nái að borga af lánunum sínum.
Steingrímur segir að 20% almenn niðurfelling sé ekki sanngjörn leið.
Því þá fái þeir sem þurfa ekkert á niðurfellingunni að halda, niðurfellingu á skuldum, á meðan þeir sem þurfi mest á niðurfellingunni að halda, dugar ekki 20% til.
Ég segi bara, ef 20% niðurfelling dugar ekki til hjá þeim sem þurfa mest á henni að halda, þá þurfa þeir að sækja um skuldaaðlögun, eða hreinlega að ganga í gegnum gjaldþrot. Þá er staðan hjá þeim aðilum svo slæm að það er fátt sem getur bjargað þeim frá gjaldþroti.
En það er engin sanngirni í því að almennt sé fólk hneppt í skuldafangelsi hérna á landinu og að enginn njóti lífsins!
Það mun ekki verða þjóðarsátt, fyrr en fólk finnur að það hefur eitthvert svigrúm og finni fyrir frelsi. Frelsi til athafna! Frelsi til að njóta lífsins!
Eins þarf að gæta sanngirni gagnvart öllum. Það eru allir að borga til samfélagsins og því er ósanngjarnt að sumir gangi fram fyrir aðra í skuldaniðurfellingum.
Við höfum horft reið á eftir útrásarvíkingum o.fl. fólki sem hefur fengið milljónir á milljónir ofan niðurfelldar.
Höfum við almenningur eitthvað minni rétt en ríkisbubbarnir?

Það að það rýmki aðeins um hjá fólki, sem nú er fast í skuldunum sínum, gerir fólki kleift að kaupa vörur og þjónustu, sem svo aftur skapar störf og hleypir þá hjólum atvinnulífsins af stað.

Ég vona að núverandi ríkisstjórn auðnist að sjá þessa hlið mála.
Til að sefa reiði almennings, þarf jafnt að ganga yfir ALLA!
Þá sem skulda lítið, þá sem skulda mikið, og þá sem skulda ógeðslega mikið.
Það ber líka að horfa á að ef þú afskrifar 20% hjá þeim sem skuldar lítið, þá er það lægri upphæð en 20% hjá þeim sem skuldar mikið eða ógeðslega mikið.
Því er ekki hægt að segja að þetta sé ósanngjörn leið.
Hún er sanngjörn, og að mínu viti er þetta eina leiðin til að skapa sátt að nýju á Íslandi.


mbl.is Vill almenna lækkun skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Reykjanesbær !

Það væri óskandi að hægt væri að taka vandamál íbúa í Reykjanesbæ og landsins alls, útfyrir pólitík?
Vandamálið í dag er pólitíkin!
Hún er að mergsjúga okkur öll og það væri gott ef fólk gæti horft aðeins fram hjá henni og horft á fólkið sjálft og landið okkar í heild.
Þessi flokkaskipting er að sundra okkur og ekkert annað.
Ef við stöndum saman að uppbyggingu, þá getum við allt.
Ég held því fram að Íslendingar séu þrautseigasta fólk sem til er.
Margir virðast halda að á þeim tíma sem kvótinn var seldur úr bæjarfélaginu, að það hafi verið val íbúa Reykjanesbæjar og að það hafi verið val að herinn færi burt!
Íbúar Reykjanesbæjar höfðu ekkert með það að gera að kvótinn var seldur úr bæjarfélaginu. Það voru kvótaeigendur sem seldu kvótann og það voru auðvitað stjórnvöld sem settu fiskveiðistjórnunarkerfið á, en það voru ekki íbúar Reykjanesbæjar sem völdu, eða kusu að kvótinn væri seldur úr bæjarfélaginu. Það vakti reiði hjá íbúum Reykjanesbæjar á þeim tíma sem kvótinn var seldur að þeir gátu aðeins setið og horft á það gerast.
Eins var það þegar herinn fór á braut. Þá reyndar voru það ekki stjórnvöld sem ákváðu að herinn myndi fara. Bandaríkjamenn voru alveg einfærir um að ákveða það!
En hvernig sem á þetta er horft, þá sitja íbúar í Reykjanesbæ eftir með sárt ennið.
Alveg sama hvað þeir hafa reynt að benda yfirvöldum á atvinnumöguleikana á svæðinu, þá hefur ekki verið hægt að bregðast við þessum atvinnumissi í þessu bæjarfélagi, og þá skiptir engu máli hvaða flokkur var við völd á Alþingi. Við erum ekki bara að tala um tvö ár aftur í tímann, þetta nær lengra aftur en það.
Það eina sem Árni Sigfússon er sekur um, er að hann hefur reynt að hefja íbúa Reykjanesbæjar upp úr vonleysinu og skapað atvinnu með því að fegra bæinn og stuðla að uppbyggingu, frekar en stöðnun. Það er kannski meira en einhver getur þolað!
Fólk áttar sig ekki á að grundvallar undirstaða atvinnu í þessu sveitarfélagi er brostin.
Sumir koma fram með tillögur um að Suðurnesjamenn geti hafið trilluveiðar. En trilluveiðar einar og sér munu aldrei getað bjargað öllu því fólki sem er atvinnulaust í Reykjanesbæ frá atvinnuleysi!
Það vantar fjölbreytt störf, fyrir menntaða og ómenntaða!
Ég er íbúi í Hafnarfirði og bý í næsta nágrenni við álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík er skuldlaust félag, eftir 30 ára veru í Hafnarfirði. Þar eru verðmæt störf, miklar tekjur sem skila sér til bæjarfélagsins og fullt af afleiddum störfum.
Álver í Helguvík myndi ekki trufla neinn. Ég styð alla íbúa Reykjanesbæjar í því að fá þangað bæði álver og gagnaver.
Nú þurfum við að hefja okkur upp úr skotgröfunum og standa saman, frekar en vinna endalaust á móti hvoru öðru!
mbl.is Reyknesingar hóta aðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hvaða veröld búum við ?

Hver er það sem stjórnar á Íslandi ?
Hafa stjórnmálamennirnir okkar ekkert um þetta að segja ?
Til hvers er fólk að kjósa, ef atkvæðið þeirra hefur ekkert að segja ?

Ef það er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem stjórnar, þá þurfum við að fara að setja þeim stólinn fyrir dyrnar.
Ég veit ekki hvort núverandi ríkisstjórn sé sú sem getur tekið þann slag, en það er ljóst að við þurfum að hafa fólk við stjörnvölin, sem getur stýrt þjóðmálunum Íslendingum í hag.
Það getur verið gott að fá ráðgjöf og leiðbeiningar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en það þarf að vera alveg á hreinu hver það er sem stjórnar á Íslandi.
Það á auðvitað að vera vilji almennings sem stjórnar á Íslandi.
Þess vegna held ég að núna sé kominn tími á utanþingssjórn.
Nú þurfa allir stjórnmálamenn á Íslandi að taka sig saman og vinna saman að lausn frá þessari óöld sem við upplifum nú.

Við almenningur búum í gerviveröld, þar við viljum trúa að allt gangi sinn vanagang. Fólk stritar fyrir laununum sínum, sem fylgja ekki verðbólgu í landinu. Við borgum hinu opinbera 40%, bönkunum 30% og Þeir sem ná að láta enda ná saman með þau 30% sem eftir standa.... telja sig ótrúlega heppna.
Er þetta eðlileg veröld?
Er þetta hreinlega eðlilegt?
Ég tel eðlilegt við þessar aðstæður að vilji Íslendinga sé skoðaður upp á nýtt. Ég held að utanþingsstjórn sé það eina rétta við þessar aðstæður.
Ég vil sjá fólk í ráðherrastöðum, sem hreinlega er ráðið til starfa vegna hæfni sinnar í þeim málaflokk.


mbl.is Engin fleiri úrræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta fer að verða ansi þreytandi !

Þar sem bankinn hefur öll tromp á hendi, getur deilt og drottnað að vild, vill hann auðvitað eignast fyrirtæki sem hefur verið rekið í árafjöld með góðum árangri.
Þetta er ekki stórt fyrirtæki, en hefur þó verið stöðugt.
Ég tel það óþolandi að banki skuli með þessum hætti sölsa undir sig fyrirtækið, þegar eigendur þess hafa ekki bolmagn til að streitast á móti.
Bankinn ætti að sjá sóma sinn í að semja um þessar skuldir við núverandi eigendur og gera þeim kleift að reka fyrirtækið áfram.
Arionbanki virðist geta samið við menn sem hafa mun meiri skuldir en þetta á bakinu - ég nefni engin nöfn !
Hvað er það sem skilur á milli feigs og ófeigs í svona málum ?
Er það geðþóttaákvörðun bankastjórnar ?
Er þetta spurning um vinagreiða ?
Hvert stefnum við með íslenska bankakerfið ?
Eru þetta bankastofnanir, eða eru þetta framtíðareigendur alls húsnæðis og alls fyrirtækjareksturs í landinu ?
Það þarf eitthvað að gerast til að breyta þessari þróun mála !
Niðurfelling skulda er óhjákvæmileg - og það er leitt að það sé ekki búið að gera eitthvað í þeim málum fyrir löngu síðan !
Þetta á bæði við um fyrirtæki og heimili !

mbl.is Arion banki segist vilja endurreisa Sigurplast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta virkar ekki rétt !

Ef lífeyrissjóðir virkuðu rétt, þá ættu þeir ekki að geta skilað neikvæðri ávöxtun.
Lífeyrissjóðirnir eiga eingöngu að ávaxta sjóðina með öruggri ávöxtun.
Við erum að greiða í þessa sjóði, til að tryggja okkur lífeyri eftir að starfsævi okkar er lokið.

Það að skerða lífeyri til sjóðsfélaga er hreint út sagt, skammarlegt !

Mín skoðun er að það eigi að leggja niður alla lífeyrissjóði landsins.
Færa innistæður sjóðsfélaga yfir í Seðlabanka Íslands, þar sem þeir fengju reikning á sínu nafni.
Seðlabanki Íslands myndi síðan tryggja þessa reikninga og ávaxta.

Með því að gera þetta svona:
* Myndi vald lífeyrissjóðanna falla niður.
* Hættan á að lífeyrir landsmanna rýrni, minnkar

Ég hvet ríkisstjórn Íslands að skoða þessi mál og gera breytingar til batnaðar.
Við getum ekki boðið fólki það, sem greitt hefur í lífeyrissjóð og er komið á eftirlaun, að búa við fátæktarmörk.


mbl.is Lífeyrisgreiðslur lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI, ÞÝÐIR NEI !

Þegar um ofbeldi er að ræða, er lögð mikil áhersla á að NEI, ÞÝÐI NEI!
Nú er komið að okkur að segja NEI !

Ég átta mig ekki á þeirri hugmynd Jóhönnu að sitja heima, þegar kosið er.
Hingað til hefur Jóhanna ekki legið á skoðunum sínum, og hún getur vel sagt já í kosningunum á morgun!
Það er óvirðing við kosningarétt okkar Íslendinga, að ráðherra mæti ekki á kjörstað!
Ef við mætum ekki á kjörstað, veikjum við niðurstöðu kosninganna og það getur veikt þann rétt okkar Íslendinga að fá í framtíðinni að kjósa um mikilvæg mál í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það er jákvæð þróun fyrir okkur Íslendinga að fá að hafa eitthvað um stórar ákvarðanir að segja.
Ástæðan fyrir því að forseti Íslands skrifaði ekki undir, er sú að hann vildi setja málið í okkar hendur.
Nú er það undir okkur komið að segja hvað okkur finnst!
Ef við trúum því að lýðræði og kosningar hafi eitthvað að segja, þá mætum við á kjörstað!
Ef við trúum því hinsvegar ekki, nú þá mætum við einfaldlega ekki!

Hvað þýðir já?
Já, þýðir að samningurinn tekur gildi!

Hvað þýðir nei?
Nei, þýðir að samningurinn tekur ekki gildi!

Hvað þýðir að skila auðu?
Að skila auðu, þýðir að viðkomandi er sama hvort samningurinn tekur gildi eða ekki!

Hvað þýðir að mæta ekki?
Að mæta ekki, þýðir að viðkomandi hefði viljað að forsetinn skrifaði undir samninginn og hefði viljað að þjóðaratkvæðagreiðsla væri ekki til staðar.

Sá samningur sem er kominn í lög og tekur þá gildi eftir að nýju lögin verða felld úr gildi, er mun betri en þessi samningur sem við erum að kjósa um á morgun. Fyrri samningurinn er með samþykkt allra flokka, þar sem allir flokkar komu að og náðu sátt um.

Ég hefði náttúrulega viljað að við borguðum sem minnst af þessu, þar sem þetta eru skuldir einkaaðila.
Innistæðutryggingasjóður á að greiða þetta, og ef hann er gjaldþrota, þá þykir mér það leitt fyrir Breta og Hollendinga.

Steingrímur heldur því fram að það sé eitthvað ægilegt mál að þurfa að semja við Breta og Hollendinga í þriðja sinn!
Ég segi bara:,,Hvað með það þó Bretar og Hollendingar þurfi að semja við okkur í þriðja sinn?"
Ef þeir vilja ekki semja við okkur, þá er það þeirra vandamál!

Við Íslendingar eigum ekki að láta þröngva okkur til að greiða einkaskuldir, sem okkur ber ekki að greiða.
Við getum leyst þetta mál með þeim hætti að við getum lifað sátt hérna á Íslandi, við viljum ekki festa okkur í skuldaþrælkun að hætti Suður-Ameríkubúa.

Þessar kosningar hafa áhrif og við þurfum að láta vita að okkur er ekki sama um þróun mála hérna á Íslandi!


mbl.is Ólafur Ragnar ætlar að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættum að versla í Bónus !

Ef við erum ósátt við að Jóhannes fari aftur að stjórna Bónus, eins og ekkert hafi gerst hérna á Íslandi, þá eigum við að hætta að versla í Bónus.
Það er eina leið okkar til að mótmæla!
Það tekur smá tíma að þurrka Bónus út af harðadrifinu í hausnum á okkur, sem eina möguleikann til að fara að kaupa í matinn - því þar er ódýrara!
En er ódýrara fyrir okkur þegar uppi er staðið að versla í Bónus, þegar fleiri hundruð milljarðar hafa fallið á okkur af þeirra vegum ?
Ég held ekki !!!
Ég held að þeir feðgar, séu búnir að gera nóg hérna á Íslandi !
Nú mega þeir bara fara eitthvert annað.... helst eitthvert rosalega langt....
Ég hef núna ekki farið í Bónus í heilan mánuð - og ég skal segja ykkur ég var nokkrum sinnum komin á bílaplanið hjá þeim feðgum....af vananum einum.
En núna vel ég aðra kosti - eins og t.d. Fjarðarkaup eða Krónuna .... allt annað en Bónus.

P.S. Ég á engra hagsmuna að gæta í öðrum verslunum.
Ég er bara orðin þreytt á að vera gólfmotta fyrir þessa gaura !!!!


Hvernig væri að prófa að standa saman !

Núverandi ríkisstjórn mun ekki geta staðið af sér þessa samninga, nema með því að vinna þetta saman með stjórnarandstöðunni.
Leynimakk, ef slíkt er í spilinu?, getur ekki endað öðruvísi en með enn meiri stjórnarkreppu en við búum við í dag.
Við þurfum að prófa að standa saman.
Allir Íslendingar, sömu megin við borðið !!!
mbl.is Grunur um leynimakk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirtektir voru ekki fagnandi við okkar hugmyndir !

Þetta voru orð Steingríms eftir fyrstu viðureign í annarri umferð.
Við eigum ekki endilega von á því að hugmyndir Breta og Hollendinga um úrlausn IceSave fari saman með okkar hugmyndum, enda liggja hagsmunir okkar ekki endilega saman.
Hagsmunir pr. íbúa í landinu, eru t.d. mun meiri hjá okkur en hjá Bretum.
Við erum ekki að sækjast eftir því að Bretar og Hollendingar séu rosalega glaðir með samninginn, heldur að þeir átti sig á alvarleika málsins fyrir okkur Íslendinga og sætti sig við það sem við getum gert.
Þeir græða ekkert á því að blóðmjólka okkur!


mbl.is Hóflega bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband