Sóley tekur stórt upp í sig, þegar hún segir að þjóðin hafi gert upp við frjálshyggju undanfarinna ára á Alþingi, en eigi eftir að gera það í sveitarstjórnum.
Það virðist vera mikið kappsmál hjá þeim flokkum sem sitja nú í stjórn Alþingis að vera með áróður á móti frjálshyggjunni.
Ég held að þjóðin sé ekki komin með nóg af frjálshyggjunni, heldur þeim stjórnarháttum sem tíðkast hafa á Alþingi!
Stjórnarhættir sem lituðust af eiginhagsmunum, vinagreiðum, undirlægjuhætti og stórkarlalátum eru eitthvað sem allir Íslendingar eru komnir með nóg af!
En þessu ber ekki að tengja neitt sérstaklega við frjálshyggjuna !!!
Því þessi háttur sem hafður hefur verið á, í stjórn landsins, einskorðast ekki við frjálshyggjuna.
Það er voða gott að benda á frjálshyggjufólk, því það var við stjórn þegar efnahagshrunið átti sér stað.
En þessi háttur hefur verið við lýði - miklu, miklu lengur og skorðast ekki við neinn ákveðinn flokk, því miður.
Það væri voða gott að geta þurrkað út einn flokk, og verið þá laus við spillinguna.
En þetta er ekki hægt, þar sem spillingin og vitleysan nær til allra flokka.
Fyrir hrunið, hélt ég að við byggjum í nokkuð spillingarlausu landi, þar sem maður heyrði ekki af mútuþægni og öðru slíku.
En spillingin á Íslandi var ekki á yfirborðinu...hún kraumaði undir niðri.
Vinagreiðar hér!
Venslagreiðar þar!
Fjármálapukur hér og þar og allsstaðar !!!
Það er þetta sem fólk er komið með alveg nóg af !!!
Þetta þarf að afmá úr íslenskri pólitík !!!
Mín skoðun er sú að setja eigi hámarks árafjölda sem fólk megi sitja á þingi.
T.d. ef fólk má vera á þingi í 8-12 ár, þá hugsa ég að afköstin verði meiri fyrir fólkið í landinu, þar sem þingmenn keppa að því að ná fram markmiðum sínum.
Ef þingmönnum verður ekkert ágengt á þessum tíma, þá hefur það ekkert að gera á þingi. Það er ekki að vinna vinnuna sína fyrir okkur Íslendinga.
Ef það er meiri hreyfing á þingmönnm sem koma inn á þing, þá minnkar það hættuna á spillingu.
Einnig þurfa þeir sem gefa sig út í pólitík að velja á milli eiginhagsmunapots og allrahagsmunapots !!!
Þetta tvennt fer ekki saman !
Þingmenn og stjórnmálamenn yfir höfuð, þurfa að vinna heilt fyrir alla Íslendinga, ekki bara afmarkaðan hóp Íslendinga.
Þess vegna segi ég, það er ekki gríðarlega mikilvægt að það verði vinstri meirihluti eftir kosningar, eins og Sóley segir!
ÞAÐ ER BARA MJÖG MIKILVÆGT AÐ FÁ FÓLK TIL STARFA,
SEM ER AÐ VINNA VINNUNA SÍNA OG GERA GOTT FYRIR OKKUR ÍSLENDINGA!
|
Góð uppskrift að kosningasigri í vor |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Bloggar | 7.2.2010 | 10:48 (breytt kl. 10:56) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Kjaramál
- Lífstíll
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Bloggvinir
| Jan. 2012 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | ||||
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 9217
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


axelthor
zeriaph
hildurhelgas
fullvalda
godsamskipti
bofs
johanneliasson
os
sighar


Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.